Sjálfstæðisfélag Mosfellinga

18. janúar 2012 | Fréttir

Breyting á fundartímum

Ágætu Sjálfstæðismenn,

Vegna fremur dræmrar mætingar á laugardagsfundi félagsins þá hefur verið ákveðið að færa fundina yfir á fimmtudagskvöld.

Næsti fundur verður haldinn í húsnæði félagsins að Háholti fimmtudaginn 26. janúar og hefst kl. 20:00.  

Dagskrá verður sem hér segir:

•    Ofurskattar eða eignarnám
Vilhjálmur Bjarnason mætir og  flytur erindi um skattamál
•    Önnur mál

Sjálfstæðismenn fjölmennum

f.h. Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ
Elísabet S. Ólafsdóttir
Haukur Ómarsson
28. nóvember 2011 | Fréttir

Laugardagsfundur 3.des kl. 11.00

Ágæti Sjálfstæðismaður.

Síðasti laugardagsfundur ársins verður haldinn í félagsheimilinu Háholti n.k. laugardag 3. desember og hefst kl. 11.00

Dagskrá:
-Að afloknum Landsfundi
Farið verður yfir helstu ályktanir og samþykktir Landsfundarins
-Önnur mál

Boðið verður upp á kaffi og piparkökur

Sjálfstæðismenn fjölmennum!

F.h. Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ,
Elísabet S. Ólafsdóttir
Haukur Ómarsson

03. október 2011 | Fréttir

Fyrsti laugardagsfundur vetrarins

Ágæti sjálfstæðismaður,

Fyrsti laugardagsfundur vetrarins verður haldinn n.k. laugardag, 8. október í Sjálfstæðishúsinu Háholti.  Fundurinn hefst kl. 11:00.

Dagskrá:

  1. Bæjarmálin

Haraldur Sverrisson bæjarstjóri fer yfir fjárhagsáætlun og framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins

  1. Önnur mál

Félagar fjölmennum – heitt á könnunni

 

F.h. Fulltrúaráðsins

 

Elísabet S. Ólafsdóttir

Haukur Ómarsson

23. maí 2011 | Fréttir

Síðasti Laugardagsfundurinn fyrir sumarfrí

Ágætu sjálfstæðismenn

Síðasti laugardagsfundurinn fyrir sumarfrí verður haldinn n.k. laugardag, 28. maí kl. 11.00 í Sjálfstæðishúsinu Háholti.  Dagskráin verður sem hér segir:

  1. Jón Gunnarsson alþingismaður

Orkumál og stjórnmálaviðhorfið almennt

  1. Önnur mál

Heitt á könnunni

F.h. fulltrúaráðsins

Elísabet S. Ólafsdóttir/Haukur Ómarsson

28. apríl 2011 | Fréttir

Rabbfundur á laugardaginn 30.apríl kl. 10.30

Ágætu Sjálfstæðismenn

Minnum á rabbfundinn n.k. laugardag, 30. apríl í Sjálfstæðishúsinu Háholti.  Athuga vel að fundurinn byrjar kl: 10:30 að þessu sinni vegna hátíðardagskrár sem hefst kl: 12.00 á bæjartorginu.  Dagskrá fundarins verður sem hér segir:

1.       Heilsuklasi í Mosfellsbæ

„Sævar Kristinsson mætir á fundinn og kynnir stofnun Heilsuklasa“

2.       Önnur mál

Félagar fjölmennum

F.h. Fulltrúaráðsins   Elísabet S. Ólafsdóttir/Haukur Ómarsson

30. mars 2011 | Fréttir

Icesafe

Hvað ætlar þú að kjósa 9 apríl 2011?
Fundur verður haldinn fimmtudaginn 31. mars nk kl. 20:00 í Kaffihúsinu á Álafossi. Þar mun fulltrúi frá Áframhópnum og fulltrúi frá Advicehópnum vera með framsögu. Síðan munum við opna fyrir fyrirspurnir og umræður.
Allir velkomnir meðan að húsrúm leyfir, þetta er einstakt tækifæri til þess að kynna sér málið frá báðum hliðum.

 

24. mars 2011 | Fréttir

Rabbfundur á laugardaginn 26.mars kl. 11.00

Ágætu Sjálfstæðismenn

Minnum á rabbfundinn n.k. laugardag, 26. mars kl. 11.00 í í Sjálfstæðishúsinu Háholti. Dagskráin verður sem hér segir:

1. Er gott að búa í Mosfellsbæ?
„Haraldur Sverrisson bæjarstjóri fer yfir niðurstöður úr þjónustukönnun Capacent meðal sveitarfélaga“

2. Önnur mál

Hvetjum ykkur til að fjölmenna.

Með góðri kveðju
Stjórn fulltrúaráðs

17. mars 2011 | Fréttir

Sjálfstæðisflokkurinn, opnari og aðgengilegri

Ágætu sjálfstæðismenn

Framtíðarnefnd Sjálfstæðisflokksins vinnur að því að endurskoða starfsemi Sjálfstæðisflokksins með það að markmiði, að hann verði opnari og aðgengilegri en nú er. Sendur hefur verið tölvupóstur til 20 þús. sjálfstæðismanna með spurningum frá hópstjórum og þeir hvattir til að láta skoðun sína í ljós. Eitt af markmiðum Framtíðarnefndar er að finna leiðir til þess að nútímavæða vinnubrögð, virkja grasrótarfélögin betur og setja aukinn kraft í almannatengsl.

Boðað er til fundar þar sem meðfylgjandi bréf frá hópstjórum Framtíðarnefndar verður tekið fyrir og mun Elías Pétursson stýra fundinum, en hann er einn af hópstjórunum.

Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 24. mars kl. 20.00 á Kaffihúsinu í Álafosskvosinni.

Sjálfstæðismenn er hvattir til að mæta og taka þátt í umræðunni og eins er hægt að senda póst á  eliaspetursson@internet.is,

með hugmyndum og innileggi í urmæðuna.

Frekari upplýsingar er að finna á www.framtidarnefnd.is

 

Með góðri kveðju

Stjórnir félaga og fulltrúaráðs

Sjálfstæðisfélag Mosfelling
Háholti 23
270 Mosfellsbær
mos@xd.is

  RSS
Ganga í flokkinn
Styrkja flokkinn
www.xd.is